Sorpuferðir á höfuðborgarsvæðinu

Það sem á að fara í Sorpu þarf ekki að bíða til vors.

Ég sæki dótið úr bílskúrnum eða geymslunni og keyri það í Sorpu. Þú þarft hvorki að eiga kerru né fara á endurvinnslustöðina.

  • ✓Oft laus samdægurs ef þú hefur samband fyrir hádegi
  • ✓Löggiltur gjaldmælir og áætlun í símanum áður en ég legg af stað
  • ✓Gjald Sorpu bætist við og þú færð kvittunina í hendur
  • ✓Líka heil dánarbú og tæming fyrir sölu

Ég svara sjálfur í símann. Er ég að keyra? Þá hringi ég til baka um leið og ég stoppa.

Magnús hjá Smáskutli á sendibílnum við endurvinnslustöð Sorpu

Magnús Helgi Sigurðsson

Smáskutl · Hafnarfjörður

Verð

Hvað kostar sorpuferð?

Það er löggiltur gjaldmælir í bílnum og ég keyri eftir opinberum taxta Sendibílastöðvarinnar: startgjald, tíminn sem verkið tekur og kílómetrarnir. Sorpuferðir eru í flokki 1.

Lýstu dótinu í símanum, þá veistu nokkurn veginn hvað þetta kostar áður en ég legg af stað.

Sjá allan taxtann

Dæmi: klukkutíma sorpuferð innan Hafnarfjarðar

  • Startgjald2.957 kr.
  • Ein klukkustund í dagvinnu14.245 kr.
  • 15 km á 441 kr.6.615 kr.
  • Samtals23.817 kr.

+ Gjald Sorpu, samkvæmt þeirra gjaldskrá. Ég borga það á staðnum og þú færð kvittunina.

Öll verð eru með 24% VSK.

Svona virkar það

Hringdu eða sendu SMS. Ég staðfesti tíma og gef þér verðáætlun.

01

Þú hringir

Síminn er 848-3219. Segðu mér hvað þarf að flytja, hvaðan og hvert — og hvort það þurfi burð. Ég gef þér áætlun strax.

02

Ég mæti

Á réttum tíma, með teppi og spennur. Þú færð hringingu þegar ég legg af stað svo þú vitir nákvæmlega hvenær ég kem.

03

Ég skutla

Dótið fer heilt á áfangastað og ég geng frá eftir mig. Þú greiðir samkvæmt gjaldmælinum.

Spurt og svarað

Áður en þú hringir

Ef svarið er ekki hér, hringdu. Það er fljótlegra en að giska.

Ég er með sendibíl og sé um að koma dótinu heilu á áfangastað. Ef þú þarft líka aðstoð við burðinn sjálfan þá geri ég það — það telst þá búslóð og burður og fer í flokk 2 á taxtanum, og mælirinn telur þann tíma sem það tekur. Segðu mér frá því strax þegar þú hringir, þá veistu að hverju þú gengur og ég mæti með réttan búnað.

Umsagnir

Orð frá fólki sem ég hef skutlað fyrir

4,97 umsagnir á Google · sjá þær allar
Thor guðmundsson
5 af 5 stjörnum
Magnús er einn af þeim mönnum sem þú getur treyst þegar eitthvað þarf að klárast almennilega. Hann er duglegur, áreiðanlegur og tekur vinnuna sína alvarlega, en er um leið þægilegur í samskiptum og alltaf tilbúinn að finna lausn. Ég þekki sjálfur vel hvað sendibílavinna krefst og get því með góðri samvisku mælt með honum og þjónustunni hans.
Hafsteinn G. EinarssonLeiðsögumaður á Google
5 af 5 stjörnum
Magnús hjá Smáskutli er lipur og hress. Allt stóðst eins og stafur á bók. Mæli með honum.
johannes eiriksson
5 af 5 stjörnum
Fékk Magga hjá smáskutl til að hjálpa mér með flutning. Súper góð þjónusta hjá honum.
Guðbjörg Hjálmarsdóttir
5 af 5 stjörnum
Frábær þjónusta hjá Magga. Alltaf jákvæður og gott að fá hann í verkefni
Kristinn Örn SigurðssonLeiðsögumaður á Google
5 af 5 stjörnum
Frábær þjónusta fyrir mjög sanngjarnt verð.
Sólveig Grétarsdóttir
5 af 5 stjörnum
Snögg og góð þjónusta
Stefán Máni
4 af 5 stjörnum
Toppmaður!
Sjáðu umsagnirnar á Google
Hringdu: 848-3219